Smile!!
21.12.2007 21:59:26 / kidda

hillú

jæja... skyldublogg (ég reikna með að það sé "y" vegna þess að það sé komið af orðinu "skuld".... en annars er ég ekki alveg viss :S) svona í tilefni þess að ég hef snúið aftur í hinn siðmentaða heim í nokkra daga í tilefni af jólunum ;)

hmm... ansi margt gerst síðan síðast!
Ég og karluglan (mjög kynþokkafull karlugla sko :haha: ) erum flutt inn í íbúðina í sveitinni og höfum það svona líka svakalega fínt... svona fyrir utan að draslið hleðst alveg ótrúlega fljótt upp svona þegar engin mamma er til að taka það til! Ég er líka fyrst núna farin að gera mér grein fyrir því hversu dugleg ég er að skipta um föt... VÁ hvað ég þarf oft að setja í þvottavélina! hér með vil ég biðjast opinberlega afsökunar á því hversu oft ég hef troðfyllt óhreynataukörfuna af næstum hreinum fötum... :S
Ég get reyndar kennt litlu hundagreyunum mínum svolítið um það hversu oft ég þarf að skipta um föt... ef ég næ ekki að gera þau óhrein sjálf þá fæ ég svolitla aðstoð við það... ;)
En nóg um það..

Ég er allavega komin á Akranesið með honum litla karli minum (Darkó;) til að halda upp á jólin hérna með familíjunni minni en stóri karlinn minn (Björn) og Daisy litla verða saman fyrir norðan og halda upp á jólin með familíjunni hans Björns :) Ég sakna þeirra nú ósköp mikið samt...
Ég er að vinna í álverinu í fríinu mínu svona rétt yfir jólin og vona að ég fái einhvern smá aukapening í vasan með því taka þessar vaktir... kæmi samt ekki á óvart þótt ég kæmi bara út á sléttu þar sem ég tók eitthvað frí á Ábæ í þessum mánuði.. en oo jæja, það kemur bara í ljos.. vonum bara að stórhátíðarkaupið skili einhverjum smá gróða ;)

En ég nenni þessu ekki... ég ætla að spila smá super mario.. hef verið að rifja upp gamla takta í ELDGÖMLU super nitendo tölvunni... gengur ekki alveg jafn glatt og það gerði einu sinni en þetta er að koma ;)

Bless í bili.. kannski að ég hendi inn einni svona "jólafærslu" seinna.. en hver veit!

kv. Kidda


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 13:09:32 / kidda

spurning dagsins...

Hvað er svart og hvítt og situr upp í tré??

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 19:45:03 / kidda

hananú!

Sælt veri fólkið!

Það er orðið svona frekar langt síðan ég skrifaði hérna síðast.. eða leit inn á þessa siðu yfir höfuð :S
Ég er nú ekki... og hef aldrei verið.. það mikill bloggari þannig að það kemur kannski engum á óvart.
En allavega! Ég er bara á fullu í vinnunni á N1.. alltaf gaman að vinna í sjoppu og sjá hvernig maður blæs út af því að að vera síétandi ís og annað óhollt sjoppufæði :( En vonandi sé ég eitthvað gott í þessu þegar ég fæ útborgað ;)

Ég er nú líka að skólast eitthvað svona þar sem ég ætla að verða stúdent í vor (eða ég klára um jólin en skólinn hérna er svona í "slappara lagi" og útskrifar bara á vorin). Ég á meira að segja að vera að skrifa ritgerð um vistkerfi heimskautanna  en ég ákvað frekar að skrifa eitthvað hérna heldur en að leita mér að heimildum fyrir þetta leiðinda verkefni!

En blabla.. við Björn erum mikið að pæla í bílakaupum núna (það er það eina sem kemst fyrir í hausnum á blessuðum manninum núna ;) ) og er Toyota hilux efst á óskalistanum og við skreppum á Akureyri á föstudaginn til að prufukeyra einn :)

Við fórum annars og keyptum sófasett og önnur álíka nauðsynleg búsáhöld fyrir svona tveim vikum og gerðum held ég bara helv.. góð kaup :)
Ég reyndar klikkað svona svakalega í útreikningnum og  bannaði Birni að taka með sér 4 hesta  hestakerru inn í Reykjavík... en svo kom auðvitað í ljós að sófinn komst ekki alveg fyrir í bílnum þannig að mútta þurfti að koma og taka annan helminginn af sófanum :$ sssssmááá mistök af minni hálfu! mér fannst það bara ekkert svakalega smart að hafa með sér rrrriiisssa stóra hestakerru inn í miðbæ Reykjavíkur og fyrir utan Smáralindina og Kringluna og svona... hehe það hefði líka verið gaman að finna stæði og svona!
En þetta reddaðist sem betur fer.. en ég hugsa mig kannski betur um næst þegar hann biður um að fá að taka kerruna með :P 

en ætla að fara að gera þetta leiðinda dæmi... ohhhhhhh.... :whut: 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 13:32:13 / kidda

tattoo

Heima á ný :D
Það ríkir ekkert nema gleðin á mínu heimili núna þar sem allir eru glaðir með að vera komnir heim (sérstaklega ég).

Ferðin endaði kl. 3:30 í nótt þegar flugvélin lenti á Keflavíkurflugvelli eftir 6klst og 10mín flug!! alveg hvað ég hélt að ég myndi öskra af gleði þegar við lentum loksins... þetta var ekki skemmtilegasta flug sem ég hef farið í :/

En það er svosem ekki mikið að segja... nema að ég og mamma erum orðnar heldur betur lífsreyndar!!
Það er nefnilega þannig að á laugardaginn skelltum við okkur inn á tattoo stofuna Tattoo Inn og fengum okkur sitthvort tattooið á ökklann :) Ef við erum ekki eitur svalar mæðgur þá veit ég ekki hvað!
Mér finnst ég reyndar mun hugrakkari en mamma þar sem ég fékk mér bæði stærra tattoo og ég fór inn á undan og lét setja það á ;) Mömmu tattoo er fiðrildi sem er svona aðeins stærra en tíkall en mitt er svona tribal tattoo og nær alveg frá ökla og svona "pennalengd" (hef ekkert annað til að miða við;) upp á kálfann... úúúúú eingar smá skvísur :D
Ég neita því nú ekki að þetta hafi verið svona frekar mikið vont þegar hann var að basla við að gera strikin sem voru sem næst ökklanum (þar sem styst er niður í bein), en afgangurinn var nú ekki svo slæmur. Ég get þó sagt með fullri vissu að ég geri þetta ekki aftur alveg á næstunni :P

Kidda.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 21:01:50 / kidda

Útlandablogg 2

Núna hef ég svona rétt rúmlega 7 mínútur til ad skrifa lítid blogg.

 Jaeja, tá er komid tridjudagskvold og ég er ekki frá tví en ad ég sé bara farin ad hlakka til ad komast heim (tad er reyndar ekki fyrr en á sunnudaginn en tad er tó komin smá fidringur í mann). Vid fórum í vatnsrennibrautagardinn í gaer og tad er óhaett ad segja ad ég hafi komid heim í líki rjúkandi brunarústa :S
Laerin á mér voru heldur betur raud og illa leikin og tad er óhaett ad segja ad brókafarid sé ordid ansi áberandi (en tad sjá tad sem betur fer ekki margir nema ég og mínir nánustu).

Hjá fjolskyldunni er tad ordin venja ad einhvertíma eftir klukkan 5 (tá eru yfirleitt allir komnir med nóg af sólinni og fara loksins inn) tá hittast allir fyrir framan stóra spegilinn (tad er einn stór spegill inni í svefnherberginu sem naestum allir rúmast fyrir í einu) til ad metast á hver hafi nú tekid mestan lit yfir daginn :)
Axel, pabbi og Mamma hafa nú vinninginn held ég... mamma og pabbi voru reyndar búin ad taka gott forskot á brúnkuna í sumar... tau eru búin ad hanga hálf ber úti á palli í sólbadi í hvert sinn sem smá sólarglaeta er á himninum og tau voru líka búin ad fara til Madrid fyrr í sumar.
Axel er samt held eg bara svindlari... hann er oruglega med brunkuspreyid falid einhverstadar tar sem vid sjáum tad ekki og sprautar á sig í tíma og ótíma til ad verda brúnni en vid hin!!
Litla dýrid tarf ekki einu sinni ad nota sólarvorn!! :evil:
Lilja er nú búin ad taka slatta lit líka og er ordin frekar mikid brún á oxlunum.. hún nádi samt ad brenna svo svakalega í vatnagardinum í gaer ad hún fékk blodrur a axlirnar greyid og er oll ad flagna í dag :S
Og svo er tad hún litla ég... ég ber á mig sólarvorn med styrkleika 30 OFT á dag tannig ad ég verd mun ljósari en hin (sem bera á sig 10). Samt nádi ég ad brenna svona svakalega í gaer, og svo fékk ég líka svona sólarexemvidbrogd.... sem ég var ad vonast til ad ég myndi bara sleppa vid fyrst tau voru ekki komin fyrir :( En neij, núna verd ég fallega doppótt á hondunum og á tánum ef ég passa mig ekki! Bringan er enn haettusvaedi og hún er alltaf rétt vid ad brjótast út í útbrotum.. ekki gaman :(
En ég er tó búin ad taka smá lit og ég yrdi bara mjog ánaegd med tessa ferd tótt ég taeki ekki meiri lit bbbaaara ef ég slepp vid ad fá meira exem!!

 En nóg med tad! á morgun forum vid á kameldýrabak.. (ekki úlfalda heldur kameldýr)! hehe, gaman af tví! Svo forum vid í dýragardinn og tar á ad vera haegt ad finna pandabirni og hvít tígrisdýr :D gaman af tví ;)

Blogga um tad seinna :)
(fyrir ykkur forvitnu tá nádi ég ekki ad skrifa tetta allt á innan vid 7 mínútum... ég turfti ad eyda einni evru í vidbót til ad fá extra 10mín :P )
En útlandaKidda bidur ad heilsa!!
ADIOS :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 20:24:41 / kidda

útlandablogg

jaeja, núna er ég stodd í útlandinu góda, Lanzarote (verd nu ad vidurkenna ad tótt ad ég hafi verid hérna í rúmlega viku tá er ég ekki alveg 100% viss hvernig á ad skrifa nafnid á tessari blessudu eyju. En vid erum í borginni Playa blanka á hinu góda hóteli Playja Flamengo. :)

Vid búum lítilli íbúd med 1 svefnherbergi, badherbergi og sameiginlegu stofu og eldhúsrými. Tetta vaeri fullkomid ef vid vaerum 2 eda 3 en neeij, vid erum vist 5 og tar af leidandi skerdir tetta vissulega hid persónulega rými sem madur hefur fengid ad lifa vid hingad til.
Tad reyndar bjargar tví ad Lilja sefur í nágrannaíbúdinni tar sem systir pabba, madurinn hennar og dóttir teirra eru.
Ég og Axel sofum tví saman i stofunni og hefur sambúdin hingad til gengid alveg agaetlega.... ég segi nú samt ekki ad ég hafi ekki vaknad einu sinni eda tvisvar vid ad fá hefa í andlitid og svo verd eg nú ad vidurkenna ad eg er ekki alsaklaus tar sem eg rumskadi einu sinni vid tad ad eg reyndi af ollu minu afli ad ná mínum litla lakskarfi (sem kallast saeng hérna í útlandinu) sem reyndist svo vera "saengin" hans Axels :S
Annars er hérna vid hótelid mjog gód sólbadsadstada og stór sundlaug fyrir krakkana. Svo er hérna rétt 50m fyrir nedan íbúdina okkar strond sem er aetlud fyrir hótelgestina tannig ad tetta er bara saelan :)

 Madur er búin ad taka smá lit og ég hef hingad til ekki fengid nein meiriháttar sólarexemútbrot eins og ég fékk heldur betur ad finna fyrir sídast tegar ég fór til útlanda. Bringan er reyndar adeins farin ad lata ásjá eftir daginn í dag en tad vonandi ekkert til ad hafa áhyggjur af. Ég skelli bara á tetta helling af sterakremi á kvoldin tegr sólin er farin og vona ad útbrotin verdi svo gott sem horfin morguninn eftir tegar naesta sólbadstorn hefst.

Hingad til hofum vid nu ekki gert neitt ofsalega mikid, enda erum vid víst í sumarfríi og eigum ad lifa og haga okkur eftir tví og nýta tímann í ad gera sem minnst og láta okkur lída vel.
Vid erum nú reyndar búin ad fara í verslanamidstadaleidangur á naestu eyju og eyda smá pening í H&M og svona :)
Svo fórum vid á svona markad í dag (vorum úti frá tví klukkan 10-16 og hitinn hefur oruglega nád hátt í 40º eda jafnvel meira).
Planid er svo ad fara í kafbátaferd á morgun og svo er ferd í vatnsrennibrautagardinn og í dyragardinn á planinu einhvertíma í naestu viku. Alltof nóg ad gera ;)

Annars verdur tví ekki neitad ad ég hlakka nú svolítid til ad fara heim, enda nóg ad gera tegar tangad verdur komid. Mest hlakka ég tó til ad komast heim og knúsa manninn minn og litla drenginn (Darkó, sem orugglega verdur ordinn risastór hvolpur en ekki bara lítill hvolpur eins og tegar ég fór).
En jaeja, tad kostar víst ad sitja hérna og skrifa tessa longu raedu.
Ég reyni ad skrifa herna aftur einhvertima bradlega.

Bless í bili :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 11:28:35 / kidda

ættarmót og heilsusamlegt líferni

jæja... hérna sit ég, uppi í rúmi, og bíð þess að ég fái útborgað svo að ég geti farið og gert þá hluti sem ég þarf nauðsynlega að vera búin að gera fyrir klukkan 5 í dag!

Málið er að um helgina er ættarmót á Hólum í Hjaltadal hjá fjölskyldu pabba úr ættinni hans afa (skemmtilega orðað), semsagt Ingibjörgu langömmu og Þorsteini afa :)
Eftir þetta blessaða ættarmót er ég komin í 4daga frí (fékk 2næturvaktir í frí í vinnunni) sem ég ætla að eyða fyrir norðan.
Darkó fer í dag norður með mömmu og pabba en ég kem ekki fyrr en á morgun þar sem ég ætla að taka eina næturvakt í nótt... En málið er að hann Darkó litli á ekki búr til að ferðast í þannig að ég þarf að skjótast í bæinn og kaupa eitt stikki rándýrt búr fyrir hann til að geta haft hann í í bílnum. En það er víst ekki hægt nema að maður eigi pening þannig að ég bíð í von um að fá útborgað fyrir hádegi svo að ég geti gert allt hitt sem ég þarf að gera í dag (listi sem ég nenni ekki að skrifa upp).

Ég er búin að vera óhemjudugleg þessa síðustu daga.. hef vaknað fyrir allar aldir til þess að fara út að labba með litla dýrið okkar Björns (sem vex alltof hratt og er orðin helmingi þyngri núna en þegar við fengum hann) og svo hef ég farið í vinnuna og gengið eða staðið þar í svona 9 tíma samfleitt. Svo þegar heim er komið er farið beint í labbitúr með Darkó og svo að sofa.. það er aldeilis sem maður á sér mikið líf! :S
neinei, þetta er ágætt og ég ætti alls ekki að vera að kvarta.. ég get líka hugsað þetta þannig að núna get ég alltaf borðað eins og ég vil án þess að hafa áhyggjur af því að þyngjast upp úr öllu valdi þar sem ég er alltaf í göngutúr eða að labba í vinnunni (ég las það sko í einhverju blaði að 15mínútna göngutúrar nokkrum sinnum á dag gætu gert manni svakalega gott og maður myndi léttast alveg helling... en ég hugsa reyndar að mataræði komi svolítið þar inn í líka! og ég sem borða næstum ekkert nema brauð í vinnunni get kannski ekki verið að monta mig of mikið yfir hollu líferni ;) )

En þessu skyldubloggi er svona næstum lokið. Nenni ekki meiru. Ég ætla að athuga í 3 skipti síðan ég vaknaði kl. 10:30 hvort að ég sé búin að fá útborgað! :)
bless í bili :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 22:07:40 / kidda

nýr fjölskyldumeðlimur

Á þriðjudaginn í síðustu viku bættist við nýr fjölskyldumeðlimur. Hann er lítill og loðinn og pissar á dagblöð. Hann er yndislegur grár og með mislit augu, eitt blátt og eitt brúnt. Hann er Siberian Husky hundur og heitir Darkó.

Það var reyndar mikið mál að ákveða nafn á þennan litla einstakling en það endaði þó með því að hann var látinn halda upprunalega nafninu sínu þar sem við komumst enganvegin að sameiginlegri niðurstöðu ;) En Darkó er flott nafn á flottum hundi þannig að það var bara látið standa.
Hann er algjör fjörkálfur og nýtur þess í botn að hlaupa um garðinn og elta öndina sína eða rauða boltann sem hann náði sér í. Mér skilst meira að segja að hann sé mjög efnilegur í fótbolta... samkvæmt barnapíunum mínum (Axeli og Lilju) en þær eru ráðnar til að líta eftir honum á meðan ég er í vinnunni.
Hann er svo mikið yndi þessi elska... hann er svo glaður að sjá mig þegar ég kem heim úr vinnunni að hann hoppar út um allt og verður alveg snarofvirkur!
Ég og Björn gætum ekki hafa fengið okkur yndislegri hvolp.
Björn greyið fær reyndar ekki að umgangast hann mikið núna í sumar þar sem ég er heima á Skaganum en hann fyrir norðan. En við Darkó förum norður í ágúst, hann 2 vikum á undan mér en ég ætla að skella mér í sólina fyrstu 2 vikurnar í ágúst. :)

Ég er annars að vinna á fullu og svo er ég að þjálfa þess á milli, nóg að gera.
Ég er hálf kvíðin fyrir því að þurfa að vakna í fyrramálið til að hleypa þessu greyi út að pissa og jafnvel að fara aðeins út að labba með hann og leifa honum að rétta úr sér. Ég hef nefnilega verið að vakna klukkan 6 og fara með hann að labba áður en ég fer í vinnuna... ég á eftir að vera ein úldin Kidda í fyrramálið!  :S
En við eigum eftir að leggja okkur saman við Darkó þegar við komum inn úr göngutúrinum góða!

Ég hlakka MIKIÐ til í haust eða seinnipart sumars (veit ekki hvort að lok ágúst sé haust eða seinnipartur sumars...) en þá verða báðir mennirnir í lífi mínu hjá mér! Þá verður lífið sko ljúft! :)

En jæja... voffi litli er orðin svolítið órólegur og ég held að ég ætti að hlaupa með hann út að pissa áður en hann gerir þetta í rúmið mitt eða á gólfið eða eitthvað! 8|

Þangað til næst,... bæjó!


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 12:18:24 / kidda

hvenær koma þau eiginlega heim??

Hvar eru mamma mín og pabbi minn???!? ég hélt að þau myndu koma heim í nótt og hafði fyrir því að taka til eins og brjálæðingur... lét krakkagrísina meira að segja skrúbba stofuna og eldhúsið! hehe :)
En neij, þau eru ekki komin heim! kannski hafa þau ekkert ætlað að koma heim aftur. Þau hafa pottþétt bara framlengt fríið og ætla að vera þarna í allt sumar :(

Eeeen, fór í blóðprufu í morgun. Það er ekki gaman. hehe.. það er líka ótrúlega findið hvað það þurfa að vera margar manneskjur inni í herberginu til að taka þetta blóð! ég held að það hafi verið svona... hmm.. 4 fyrir utan mig! og það finnst mér mikið þar sem það var nú bara ein þeirra eitthvað að stinga mig með nál og eikkað :S
En ég lifði þetta af.. sem betur fer ;)

En klukkan er 12:15 og ég ætla að drífa mig í bakaríið núna svo að ég komist hjá því að þurfa að kaupa ofan í krakkana líka ;) hehehe.. vá hvað ég er vond!! En allavega.. ég er að spara.. þau verða bara að borða banana og vinber hérna heima (þ.e.a.s. ef þau koma heim í hádeginu) á meðan ég fer í bakaríið og kaupi mér einhverja óhollustu :D heheh..


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 17:03:29 / kidda

magapína

Úff, maginn á mér er í algjöru rugli. Ég má ekki hlaupa aðeins á fótboltaæfingu án þess að hrista svo vel upp í honum að ég æli bara allt kvöldið og svo má ég ekki vera svöng í meira en 10mín þá hætti ég að vera svöng og byrja að æla... drasl!!
Þetta hafa semsagt síðastliðin tvö kvöld farið í að stunda :(
Ég reyndar fór að keppa í fótbolta í gær og það er ástæða þess að maginn á mér fór í rugl og kvöldið þar áður mætti ég á fótboltaæfingu og maginn á mér fór í rugl.
Ég er satt best að segja farin að íhuga hvort að það sé þess virði að mæta á æfingar ef ég verð svona veik á eftir..... maður spyr sig! :$

Annars hef ég lítið gert í dag. Fór og leit inn í Bónus sem var að opna.. alltaf gaman þegar nýjar búðir opna með helling af tilboðum. Það endaði reyndar þannig að ég fór öruglega í allar búðirnar í leit að ætilegum kvöldmat.. en fann að lokum forláta pakkapítsu sem ætti að nægja mér og krökkunum.
Mér reyndar hundleiðist eins og er... ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér, sit bara á rassinum og glápi á sjónvarpið, sem reyndar er ekki slæmt stundum, en er samt eitthvað sem ég vildi heldur kjósa að gera í hófi, ekki allan daginn :(

jæja.. ég er hætt þessu fílubloggi og ætla að fara að brjóta saman þvott eða eitthvað álíka uppbyggilegt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 15:58:49 / kidda

ooooðnæmi!

Ég er ekki frá því að tímabil ofnæmisins sé að ganga í garð.
Ég er búin að vera með hor í nös síðustu tvær vikur og svo hleyp ég annað slagið út í útbrotum, það er ekki gaman. :S :cry:

Ég er búin að vera óskaplega "ekkidugleg" við að blogga og segja fréttir af mér undanfarið, enda er ég búin að vera alveg ótrúlega virk í sveitalífinu núna undanfarið. Ég er þar minnst tvo tíma á dag og tem og kembi hestum og tek á móti lömbum þess á milli.
Ég er reyndar komin heim á Skagann núna og ég veit eiginlega ekki hvað ég á að gera af mér! mér gjörsamlega hundleiðis (og við erum að tala um að ég hef bara verið hérna í tæpan einn sólahring). Ég er mikið að pæla í að láta kallinn minn senda mér hestinn sem ég er búin að vera að "sjá um"... ég gæti geimt hann í garðinum og farið á bak annað slagið.....
eða neijj, ég gæti það reyndar ekki útaf því að ég er ekki búin að full temja hann (kallinn lét mig nefnilega fá ótamin hest og sagði að ef ég vildi á bak þá þyrfti ég að gjöra svo vel og temja hann).. það gengur hægt! :)

Ég er foreldralaus í augnablikinu, og verð fram á mánudag. Mamma og pabbi skuppu til Madrid með vinnunni hans pabba og það kom í minn hlut að passa krakkagrísina á meðan. Það verður auðvitað ekkert nema heragi hér á þessum bænum ;)

Prófin gengu svona líka glimrandi vel (að ég held). Ég er reyndar ekki búin að fá útúr þeim ennþá en það gerist vonandi í næstu viku. Ef ég hef klúðrað einhverju prófi þá er það helst stærðfræðin... eins og vanalega!

Ég er að pæla í að kaupa mér hund (eða ég og Björn). Við ætlum að fá okkur svona Siberian Husky (svona sleðahund sem er eins og úlfur i útliti). Það verður geeeðveikt :D Það reyndar kostar MARGA peninga, en við ætlum að vera svo rík í sumar þannig að það sleppur alveg ;)

En jæja.. hugsa að þetta sé rétti tíminn til að hætta að skrifa.. annars byrja ég bara að blaðra einhverja þvælu! Ætla að hundskast á fótboltaæfingu á eftir.. það verður gaman að sjá hvort að ég á eftir að geta hreyft á mér rassgatið! :)
BBBæjhh!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 22:33:23 / kidda

Klessubíll

Bíllinn minn er klessubilaður! það er ekki gaman :( Ég HATA kæruleysi og handbremsur!!!

Svona fyrir utan það þá var þetta mjög fín helgi. Sara vinkona kom í heimsókn og kúrði sér á gólfinu inni hjá okkur Birni og fékk meira að segja rúmfélaga líka, hún kisa lét sko fara vel um sig við hliðina á henni.
Ég gerist svo nýliði í álverinu á þriðjudaginn, það mun vera eitthvurt nýliðanámskeið þá... en svona af því tilefni er ég nú komin heim á Skagann. Það verður nú reyndar lítill friður þar sem ég þarf að læra fyrir tvö próf á miðvikudaginn, gaman gaman.
Ég er búin með tvö próf nú þegar og ég held að mér hafi bara gengið frekar vel.

 En jæja.. ég hef verið að rifja upp gamla takta úr world of warcraft núna undanfarið og er bara farið að ganga frekar vel.. þetta gengur allavega fljótar fyrir sig núna þegar ég fæ að einnotka tölvuna ;) hehehe.. 

En ætla að halda áfram, góðikallinn minn er alveg við það að breytast í vondann kall (eða hann er reyndar búinn að því... hann á bara eftir að breytast útlitlega séð) í warcraft! hehe.. :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 11:12:51 / kidda

Páskafrí

 

Hið langþráða páskafrí er hafið! ég gæti ekki verið ánægðari að vera komin í nokkura daga frí frá skólanum og öllum þessum leiðinda heimalærdómi.

Þetta blogg er nú samt að verða eitthvað skrýtið! Það neitar að birta færslurnar mínar :(
En allavega, ég ætla að reyna aftur núna, svona í tilefni þess að ég er komin heim á skagan og er komin í þráðlaust net ;)
Ég verð heima núna næstu dagana, eða fram á fimmtudag, þá er planið að fara í fermingu í bænum með Birni og familíjunni hans, gaman af því!

Hvað á maður nú að gera þegar maður er komin heim?
Sækja um vinnu, það er víst eitthvað sem ég þarf að gera ef ég ætla að fá einhverja vinnu í sumar! og svo hafði eg hugsað mér að hitta svo marga.. hehe.. ef þeir þá hlaupa ekki í burtu um leið og þeir sjá mig nálgast ;)

Ég kom heim öllum að óvörum í gærkvöldi. Mamma stóð í þeirri trú að ég kæmi ekkert heim fyrr en í dag (mánudag) þar sem ég sendi henni sms á laugardagsnóttina kl. 3 þar sem stóð að ég kæmi sársvöng á morgun! hehe.. mamman mín er ekki alveg farin að kunna á þetta ;)

En allavega, ég nenni ekki að skrifa meir, ég var búin að hugsa margt og mikið skemmtilegt að skrifa en ég er búin að gleyma hvað það var, auk þess sem ég er ekki einu sinni viss um að það takist að setja þetta inn! en allavega.. bæj í bili...


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 16:18:12 / kidda

pest og letilíf

Lítið búið að gerast núna undanfarið og satt best að segja þá nenni ég enganvegin að vera að blogga núna. Ætla bara að henda inn örfáum línum og halda svo áfram að liggja í leti og gera ekki neitt.

Ég náði mér í smá pest í gærkvöldi, ældi svona kílói af einhverjum óbjóði (ég var allavega kílói léttari áðan þegar ég vigtaði mig heldur en ég var síðast þegar ég vigtaði mig).
Þetta gekk nú sem betur fer fljótt yfir og ég er svona nokkuð góð núna, búin að koma ofan í mig smá fæðu en ég ætla nú samt bara að taka deginum rólega.

Ég fór annars á fótboltaæfingu fyrr um kvöldið áður en ósköpin dundu yfir og vá, þessi æfing var HELL! ég fékk feitt asmakast og varð að hætta fyrr og um leið og ég settist niður þá fór mér að líða illa, ég hélt nú reyndar að þetta væri bara svona venjulegt blóðsykurfall sem ég fæ ósjaldan ef ég tek mikið á... en neinei.. ég var bara heppin að ná heim áður en fyrsta gusan kom!
hehehe.. þetta er ferlega ógeðfelt blogg!

En jæja, það er ferming um næstu helgi hjá litlu syss. Ekkert nema gaman af því og ég býst við að vera mætt suður strax á föstudagskvöldið :)
Svaka partý ;) hehe.. en allavega, ég ætla að kúra mér undir sængina og bora hausnum ofan í koddan og glápa á sjónvarpið þangað til kallinn kemur heim eftir skólan og þá skal ég jafnvel íhuga að fara niður og borða með honum :P hehe.. en allavega, gaman af því.. bæj


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 14:18:41 / kidda

"heilasamsetning gullfisks"

Mikið getur nú verið leiðnlegt stundum þegar kennarinn hleypir manni út 45mín áður en tíminn er búinn og maður er bíllaus! Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég verið himinlifandi og svifið út úr kennslustofunni með bros á vör og farið heim og slappað af, en þetta tilfelli var ekki eins og öll önnur tilfelli, málið er það að ég er bæði linsu og gleraugnalaus þannig að ég get ekki beint keyrt bíl án þess að taka áhættuna á því að plaffa einhvern saklausan vegfaranda niður :$
Ég gerði nefnilega þau stórfenglegu mistök að gleyma augunum fyrir sunnan þegar ég fór aftur norður á sunnudaginn, minn elskulegi maður er nefnilega ekki búinn að gera sér grein fyrir því að hann þarf stundum að muna hérumbil allt fyrir mig, þar sem ég er með heilasamsetningu gullfisks þegar kemur að því að muna eitthvað sem ég má alls ekki gleyma!

En allavega, hún móðir mín góða hringdi í mig þegar við vorum komin að Staðarskála og spurði mig með mjög ásakandi rödd sem aðeins mæðrum er unnt að leika eftir, hvort ég hefði nú ekki gleymt einhverju... en hún hughreysti mig nú og sagðist senda mér þetta strax í gær (á mánudaginn) þannig að ég á von á pakka núna í dag og það er sko alltaf gaman að fá pakka, jafnvel þótt að maður viti hvað er í honum ;)

Suðurferðin var svaka fín og það var haldið í bæinn á laugardaginn og farið í sund og í skautahöllina og svona með Lilju og Elvari og yngri (og ofvirkari) útgáfunni af Elvari, hehe.. bara gaman af því :D

Annars er árshátíð skólans núna á næstunni og það er spurning hvort maður eigi ekki að skella sér á hana, ég reyndar hugsa að ég fari bara á ballið ef að herrann ákveður að fara á árshátíð með sínum skóla, mér finnst frekar lummó að mæta einn með sjálfum sér á árshátíð... og hver vill svosem borða einhverja steik sem kokkurinn er pottþétt búinn að hrækja í og stappa ofan á af gólfinu þegar hægt er að sjóða sér gómsæta núðlusúpu heima ;) hehe...

En vá, ég er hætt í bili, get ekki ímyndað mér að það sé rosa gaman að lesa alltof löng blogg, eða mér finnst það allavega ekkert alltof skemmtilegt (svona í þau 3 skipti á ári sem ég les blogg)! en jæja, læt þetta nægja!

Ps. verð að monta mig aðeins! 8 í Stærðfræði 503 :D:D:D:D heheh... bara flottheit sko! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan